Ađalvalmynd

Auglýsing

Snótfíll

  • Nafn: Birna Hjaltalín Pálma
  • Netfang: birna@palmi.is
  • Stađur: Bolungarvík
  • Hjúskaparstađa: er á pikkföstu međ Jóhannesi Geir Guđnasyni
  • Um mig: Ég er ótrúlega skemmtileg og falleg ung kona, hef marga einstaka hćfileika og er svo ótrúlega heppin ađ vera mamma. Ég á tvo fullkomnustu og fallegustu syni í heiminum og svo á ég Jóhannes Geir sem ég ćtla ađ giftast um leiđ og hann biđur mig um ţađ ;)

Innskráningar kubbur

long time...

26. apríl 2011 klukkan 14:23
Ég skil þetta ekki með mig.... 

Mig langar að hafa svona netdagbók, bara fyrir mig, ekki það að ég þarfnist þess að hún sé lesin af öllum eða einhverjum. Mig langar að vera dugleg að skrifa í hana allt og ekkert... Ég gleymi því bara alltaf...skil þetta ekki.

Ég var að renna yfir síðustu færslu sem er skrifuð 3. maí 2009 ! Þá var settur fæðingardagur Guðna...gaman að rifja þetta upp þótt þetta hafi verið pínu erfitt tímabil, að hann hafi komið svona fyrir tímann og það allt !

Ég er komin 14 vikur með 3 barnið :) Kannski er ég þess vegna að byrja að blogga aftur, kannski er ég svona crazy óléttubloggari ? Nee ætli það..  ég ætla ekki að skrifa allt sem mig langar að borða og yfir hverju ég grenja og svona.... kannski smá af því samt. 

Mér finnst ekkert smá skrítið að í október verð ég orðin 3 barna móðir ekki orðin 28 ára :) töff ! Þetta er svo gaman, allt við þetta mömmugeimið ;) ganga með, fæða, ala upp, knúsa, kenna og bara allt við þetta. Geðveikt ! Ég var samt með svo mikla komplexa yfir því að vera komin með tvö börn, fannst ég ekkert kunna eða vita því ég var ekki búin að læra neitt. Ég veit samt helling og kann helling og núna er ég í háskóla (shit, svo fullorðins) og gengur bara rosa vel. Skemmtó nám.

Ég á einmitt að vera að læra akkúrat núna... verkefnaskil framundan og lokaprófin í rassgatinu á því...Ég hins vegar ákvað að blogga (talandi um að gera alltaf allt annað en maður á að vera að gera) Eeeen Einar liggur í sófanum með 39 stiga hita og er að horfa á skrípó. Ég er haldin svo miklum athyglisbresti að ég get ekki setið og lært með sjónvarpið í gangi... nósörryBOB ! 

skomig - læt gott heita bili, kannski á ég eftir að blogga bara á tveggja ára fresti ? sjáum til :)

 

Svo mikiđ...

03. maí 2009 klukkan 14:59
að frétta !

Í dag er 3 maí. Í dag sagði ljósmóðirinn að ég myndi eignast barn. Barnið var greinilega ekki sátt og mætti fyrir 5 vikum síðan !! Læknarnir sögðu að það hefði gerst vegna sýkingar, en ég vill meina að ég sé svo þróuð að ég er fljótari að búa til barn en aðrar konur !

Lillimann drekkur og dafnar eins og blóm í haga ! Hann er að sjálfsögðu fullkominn eins og restin að fjölskyldunni :) Þann 30 maí höfum við síðan ákveðið að gefa honum nafn. Sem verður leyndó þangað til.

Stóri bróðir er OFUR ! Hann er ljúfur og góður við bróður sinn þótt svo að afbrýðisemin láti á sér kræla annað slagið, en ekkert sem við foreldrarnir ráðum ekki við ;)

Við fluttum í nýja íbúð daginn eftir að lilli fæddist og líður yndislega ! Hún er yndislega björt og falleg og það er nóg pláss handa öllum :)

Núna tekur svo bara við aðlögun að breyttu lífi, líkamlegt og andlegt átak og fæðingarorlof ! Líkar það veeel !

Þetta uppdate var svona ef einhver skildi skoða þessa lame bloggsíðu mína enþá.... annars er að koma yfir mig tjáningaþörf af einvherju tagi og þess vegna er ég komin aftur hingað !


þar til næst

TveggjaBarnaSnót á Selfossi

Til hamingju međ ţađ !! ..nei bara...

16. nóvember 2008 klukkan 19:48
Já drengurinn gerir þarfir sínar í tiolettið... oftast...
Þetta er sko búið að taka tímana tvenna, nei þrenna, nei svona 15 allavega !

Yfir í annað - höfum það punkta, svona í tilefni dagsins ;)

  • Kreppan, já já... ekki hérna samt. Ég er enþá eð vinnu og Jói líka, enþá...
  • Dengsi Margeir er fjörugur sem aldrei fyrr og heldur okkur veeel við efnið, sem er ekkert nema gaman ! Var einmitt með rúmlega hálfa hendina ofaní klóinuí fyrradag, hann misskildi aðeins magnið af pappír sem krafist er til skeininga... fullkomið barn :) finnst okkur allavega !
  • Við EMÁ fórum vestur í 50 ára afmæli aldraðrar móður minnar, hvorki meira né minna en í boði stóra brós. draumur.is !
  • GB mætti á pallinn kl.9 á miðvikudagsmorgun og söng afmælissönginn með miklum glæsibrag.
  • Við komum heim  í faðm Jóa, sem var þá búinn að setja í þvottavél OG þurkarann ! yndispungurinn minn.. :*
  • Hann fór svo vestur á laugardagsmorgun í afmæli hjá Jóa afa og er þar enn !
  • Ég setti í þvottavél OG þurrkara og gott betur en það !
  • Frændsyskinahittingur !!! sjúklega gaman :D fórum á Geysi bistro bar og borðuðum fansý dinner (sjávarréttasalat) og hlógum dátt !
  • ákveðið var að halda hitting fyrir norðan næst, jább spennt fyrir því !
Gottt Birna, stóðst þig vel !

snót kveður að sinni

kreppulaus, í krepputransi og trylltum dansi ;)

hvađ skal gera... ??

14. september 2008 klukkan 13:11
jújú við sitjum hér heima við Rassa-Geir að horfa á Cars. Prumpu-Lena liggur við hliðina á mér að rembast við að haga sér vel ! Gengur bara ágætlega. Jói fór í Sóltúnið að læra. dulglegur elskan.

Ég kalla Einar Margeir Rassa-Geir því hann er á rassinum. Við erum að taka af honum bleyjuna... Hann er búinn að pissa á hvern einasta blett í íbúðinni !! Sem er ekki erfitt því þetta er
pínku lítil íbúð. Ég kann samt ekkert á þetta ?? Hjálp !?

M: Einar Margeir
EMÁ: já
M: hvar á maður að pissa
EMÁ: í klósettið
M: já flott hjá þér !!
    smá þögn
M: hvað ertu að gera ???!!
EMÁ: pissa
M: HEY !!!!

Svo hleyp ég með hann inná klósett þar sem hann pissar síðustu dropunum stoltur..
Svo ræðum hvað gerðist eiginlega, og honum bara gæti ekki verið meira sama. Vill bara helst fá bleyju. Við erum að tala um að hann er orðinn 3 ára !! Við fórum í íþróttaskólann í gær og hann var sá eini sem var með bleyju !!!
Mömmur þarna úti !! Hjálp !


Annars bara fastir liðir eins og venjulega.... vinna, sækja EMÁ, fara til Kollu, sækja Jóa, elda mat, svæfa, horfa á vidjó eða kíkja á Kollu, sofa.

Þetta er svona rútínan á venjulegum degi.


KRÆST hann er búinn að pissa í sig !!!! án gríns, djísus, þetta er 4 gallinn í dag !! OMG !!!

ég heimta ráð

pissusnót

Eruđi ađ grínast međ sleniđ....

10. september 2008 klukkan 17:51
já dyggu lesendur (ef það er einhver sem les þetta enþá) ég er að drukkna í selfyrsku haustsleni og nenni hreinlega engu !! Ég nenni svo mikið engu að ég er að blogga.. pældu..

við erum nokkuð hress á þessum bæ, ég er að vinna í Riverside spa (ossalega fansý). Einar Margeir er á Jötunnheimum og Jói í Árvirkjanum. Lífið gengur svona nokkurn veginn sinn vanagang.
Jötunheimar.. ég er ekki alveg nógu ánægð með þetta nafn ! Þetta hljómar eins og staður þar sem vondi kallinn á heima í ævintýrunum.. any ways..

Ég sakna þess að vera í Bolungarvík. 

Síðasta blogg var um Elmar frænda, Emmi minn ef þú lest þetta þá þarf ég að tala við þig ! 

Við eigum kött, hún heitir Lena. Skýrð eftir Helenu. Hún prumpar í hvert skipti sem maður tekur hana upp. ógeð. Hún er líka búin að klóra okkur öll til óbóta. Hvar er almennilegheitin ég bara spyr.

vá nenni þessu ekki

yfir og út

slensnót

BARA FYRIR ELMAR FRĆNDA

18. júní 2008 klukkan 04:09
Elmar frændi er frændi minn

Hann er Sonur Sirrýjar frænku sem gerir hann að frænda mínum

Mér finnst Elmar skemmtilegur frændi

Mér finnst Elmar frændi minn syngja fallega


Elmar Frændi


snót.. Elmar

frændi

Hands up motherf...

11. mars 2008 klukkan 03:22
djók...


jæja, ég ætla ekkert að afsaka mig vegna lélegrar bloggframmistöðu. Mér er alveg sama...


Við mæðgin erum hress. Mamman byrjuð að vinna (er hissa ef allir vita ekki við hvað) og sonurinn er í essinu sínu á leikskólanum. Hann er duglegur að halda okkur öllum á heimilinu (6 manns) við efnið. Nýjasta masterpiecið er listaverk í stofunni, eldhúsinu, forstofuganginum og herbergjaganginum. Það heitir "setja mömmu á hausinn". Fallegar kringlóttar og beinar línur með olíutúss á veggina ! Hver kann ekki að meta það !!

Ég var staðráðin í að nú yrði ég að flytja, þetta gengi ekki lengur "Hann er að eyðileggja húsið þitt mamma". " Nei, nei þetta er alltílagi, ég var hvort eð er búin að kaupa málingu á þetta ! Við málum svo bara um páskana". My mother, lady´s and gentlemen. Besta kona í heimi, gullkona ! Sonurinn labbar svo um og segir með stolti "Einar Margeir lita vegginn".
Ég elska þetta barn svo mikið ! þó að hann geti verið uppátækjasamur og OFURhress, þá er hann svo óendanlega fyndinn og skemmtilegur og það verður svooo gaman að segja honum frá þessu öllu þegar hann verður eldri !! Hann er meistari ! MEISTARABARN


Annars var ég á samfés um helgina. Fyrir þá sem ekki vita þá er það söngvakeppni grunnskólana. Þangað fór ég með 30 unglinga af bestu gerð ásamt Siggu hans Sigurjóns í Tungu. Við eyddum 18 tímum af helginni í rútu, for kræst seik ! Restin af tímanum fór í æðislegheit.
Ég fór í rosalegan pæjukjól fyrir ballið, svo þegar við komum í höllina þurfti ég að fara í ljótann bol utanyfir sem totally eyðilagði dressið. Ég, ásamt fleiri starfsmönnum auðvitað,  sáum svo um að engir væru að drekka, reykja eða fara með pítsusneiðar í salinn, og ég var bara nokkuð góð í því.

Unglingarnir okkar voru algerlega til fyrirmyndar fyrir utan lítilsháttar nöldur og ég er rosalega stolt af þeim. LIFI ÆSKAN !!!

Með þeim orðum kveð ég

officer lögreglusnót on duty

P.s. ég var meisuð á fimmtudaginn og er með kylfu og handjárn í beltinu mínu, Hot stuff....

ég er ekkert hćtt ađ blogga ! kommon sko....

05. febrúar 2008 klukkan 11:38
jæja...

sit hérna á Kaffi Edinborg aaalein og er að bíða eftir samloku í grilli með skinsku og osti, ætla svo að fá mér fanta með þessu ! Eðalmáltið.

Af okkur að frétta er þetta..

  • við erum flutt vestur og erum í góðu yfirlæti á hótel m(ömmu). næs
  • frúin tók inntökupróf í lögguna og náði með glans (og með því meina ég að ég rétt frussaðist í gegn)
  • frúin lá svo með strengi í fingurgómum og augnlokum meðal annars í u.þ.b. viku !! Gott
  • mér tókst að festa volvóinn 3 um daginn! Gott Birna...
  • Emá er búið að takast að setja húsið á flot, borða þvottaefni, plokka takka af öllum tölvum á heimilinu, hella mýkingarefni á gólfið og sulla í því og spreyja rakspíranum hans Agga útum allt og svo mætti lengi telja... (mömmu finnst þrátt fyrir þetta æði að hafa okkur, ætli hún sé að ljúga því ?)
  • ég er að fara að verða lögga... hands up motherf....vó róleg Birna, ekki missa sig !
  • volvóinn er lasinn, bremsunar frusu í honum. Honum láðist að láta mig vita og mættum næstum dauðanum saman á hlíðinni ! OMG !!
nenni ekki

bremsulaus snót

húsmćđraorlof

03. janúar 2008 klukkan 23:22
gleðilegt nýtt ár og blessi þig


  • ég er með húsmæðraorlof á heilanum...
  • EMÁ er búinn að skemma tölvuna mína (plokkaði marga mikilvæga stafi af lyklaborðinu) dí !!
  • fékk snótlegar jólagjafir, takk.


æ ég nenni ekkert að blogga... dí


snó..t

jćja ţá. ég skal gera ţađ...

06. desember 2007 klukkan 02:40
Ég er tilbúin að viðurkenna ýmislegt núna. Hvort það er vegna þess að klukkan er 02:29 ? Gæti mögulega verið.

Ég er skíthrædd við iðnaðarmenn. Ekki alla, en langflesta. Þeir eru stórhættulegir, skítugir í vinnugöllunum sínum með verkfæri. Án gríns, þá er ég stundum alveg að fara að gráta þegar ég mæti þeim. Hræðilegt !

Mér finnst gott að vera berfætt í ullarsokkum.

Ég tala stundum við sjálfa mig.

Stundum nenni ég ekki að tala við neinn, þá bulla ég bara þangað til viðkomandi nennir ekki að tala við mig.

Ég er nokkuð viss um að djöfullinn hafi skapað snáka, hugsanlega rúmfræði líka (því er reyndar logið uppá pýþagóras)

Núna er klukkan orðin 02:40

The "moment" is over

Snótin og sannleiksmómentið... eða.... já


Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...